Honda lætur drauminn rætast
 
Öll fyrirtæki hafa sitt lífsskeið. Mörg fyrirtæki eru seld, sameinuð eða er lokað ef þau standast ekki kröfur og væntingar markaðarins. Honda hefur vaxið stöðugt allt frá upphafi, árið 1948 og ástæðuna finnum við í stefnu fyrirtækisins.

Stefna Honda er vel úthugsuð og hefur áhrif á starfsemina hvern einasta dag hjá tæplega 130.000 starfsmönnum í yfir 40 löndum. Allt frá upphafi hafa verkefnin verið byggð á forvitni, beinskeytni og framúrstefnulegri hugsun.
Honda byrjaði sem staðbundið fyrirtæki með metnað á heimsvísu. Nú er fyrirtækið sannkallað heimsfyrirtæki með staðbundna innsýn. Honda hefur gert sér grein fyrir því að þarfir viðskiptavina eru ólíkar eftir löndum og fyrirtækið hefur því vel afmarkaða stefnu til að þróa og ná fram þeim óskum sem markaðurinn í hverju landi krefst.

Aðaltakmark Honda er að koma fram með nýstárlegar vörur sem gefa viðskiptavinunum mikið fyrir peninginn. Honda hefur nýtt sér stöðu sína á heimsmarkaði til þess að komast í gott samstarf, ekki aðeins við viðskiptavini sína heldur einnig í heildina séð með hverju samfélagi fyrir sig.

Einn hornsteinn stefnu Honda er umhverfisstefnan. Vörurnar og framleiðslan þurfa að hafa sem allra minnst áhrif á umhverfið. Það er því engin tilviljun að Honda var frumkvöðull í því að selja bíla og önnur farartæki sem notuðu minna eldsneyti og gáfu frá sér minna magn útblásturs heldur en vörur samkeppnisaðila.

Honda er eitt fárra fyrirtækja sem leiða þróun samgöngutækja sem eru drifin áfram með hybridtækni eða eldsneytissellum. Í vissum tilfellum er tæknin nú þegar fullþróuð en uppbygging samfélagsins er enn ekki reiðubúin fyrir hina nýju kynslóð farartækja sem knúin eru áfram með umhverfisvænum orkugjöfum. Svo að í staðinn fyrir að bíða eftir lausnum frá yfirvöldum hefur Honda unnið að öðrum möguleikum sem byggjast á nýrri og nýstárlegri tækni.

Staðfestu Honda í umhverfismálum má einnig sjá í metnaði þeirra fyrir að smíða sífellt öruggari farartæki. Og það eru farartæki sem eru ekki eingöngu með öryggi ökumanns og farþega í fyrirrúmi heldur hefur Honda einnig komið með snjallar lausnir sem taka einnig tillit til óvarins samferðafólks í umferðinni.

Stefna Honda nær einnig yfir það að samstarf og samskipti við viðskiptavinina eigi alltaf að vera á gleðilegum nótum – á öllum stigum. Allt frá teikniborðinu í þróunardeild framleiðslunnar í verksmiðjunni til móttöku vörunnar hjá söluaðilum. Takmarkið er ætíð að selja vörur sem standast væntingar viðskiptavinanna og ríflega það.
Það er þessum takmörkum að þakka að Honda tókst að verða stærsti mótorframleiðandi í heimi.