Honda á Íslandi býður þig velkomin/n á þessa heimasíðu og lýsum yfir ánægju með áhuga þinn á efni hennar.
Þessi heimasíða er eign Bernhard ehf.
Höfundaréttur © 2007 Bernhard ehf, Vatnagörðum 24 - 26, 104 Reykjavík, Ísland. Allur réttur áskilinn.
1. Höfundaréttur
Innihaldið á þessari heimasíðu er varið höfundaréttarlögum og tilheyrir Bernhard ehf. Upplýsingar á heimasíðunni má eingöngu nota í fullkomnu samræmi við þau lög. Annars konar notkun er eingöngu heimil með skriflegu samþykki frá Bernhard ehf. Texti, myndir, teiknimyndir, myndbönd, vörumerki, teikningar og hljóð á heimasíðunni eru eign Bernhard ehf. og er varið höfundarréttarlögum.
2. Áreiðanleiki upplýsinganna
Upplýsingarnar á þessari heimasíðu eru miðaðar við viðskiptavini Honda á Íslandi og gilda ekki endilega í öðrum löndum. Upplýsingar geta breyst án fyrirvara. Fyrir nákvæmar upplýsingar um vörurnar er best fyrir þig að hafa samband við Honda í þínu landi. Honda mun leitast við eftir bestu getu að hafa allar upplýsingar á síðunni réttar og uppfærðar en HONDA TEKUR EKKI Á SIG ÁBYRGÐ Á ÞEIM UPPLÝSINGUM SEM FENGNAR ERU AF HEIMASÍÐUNNI. Ef þú rekst á rangar upplýsingar á síðunni biðjum við þig um að láta okkur vita, til dæmis með því að senda póst á bernhard@bernhard.is
3. Öryggi upplýsinga
Honda leitast alltaf við að meðhöndla persónulegar upplýsingar þínar með viðeigandi aðgát ásamt því að virða hvern þann sem heimsækir heimasíðuna okkar. Hér fyrir neðan má sjá þær upplýsingar sem Honda getur fengið í gegnum heimasíðuna og hvernig farið er með þær upplýsingar.
- Persónuupplýsingar
Honda skráir engar persónuupplýsingar um þig (svo sem nafn, heimilisfang, símanúmer eða netfang) án þess að þú gefir leyfi fyrir því. Ef þú gefur upp persónuupplýsingar til Honda munum við nota þær til að kynna fyrir þér nýjustu fréttir frá Honda í formi markaðsherferða, markaðskannana, þjónustu í kjölfar sölu og annað því tilheyrandi ásamt því að geta notað þær til að komast í samband við þig. Honda getur, ef nauðsyn krefur, gefið þessar upplýsingar til umboðsaðila, eigin verkstæða og þeirra sem höndla þau mál sem voru talin upp hér að ofan. - Aðrar upplýsingar
Í sérstökum tilfellum söfnum við upplýsingum sem eru ekki bundnar þeim sem heimsækja okkur persónulega. Dæmi um slíkar upplýsingar er slóð heimasíðunnar sem færði gestina inn á síðuna okkar, hvernig vafri var notaður til að skoða síðuna eða hvernig stýrikerfi gesturinn notaði. - Upplýsingar um „cookies“
Þegar þú opnar heimasíðuna getum við vistað ákveðnar upplýsingar inni á harða disknum þínum. Þessar upplýsingar vistast sem „cookie“ eða svipuð skrá og hjálpar okkur við að þjónusta þig eins vel og mögulegt er. Með aðstoð „cookies“ getum við t.d. sniðið heimasíðuna eða tilkynningu betur að þínum þörfum og óskum. Ef þú vilt ekki nota „cookies“ getur þú breytt stillingum í vafranum sem þú notar þannig að hann vistar þær ekki eða biður um leyfi þitt fyrst. Sjá nánari upplýsingar um þessa möguleika í leiðbeiningabókum eða hjálparsíðum með forritinu sem þú notar til að heimsækja heimasíður.
4. Tengiliður
Ef þú hefur gefið Honda persónulegar upplýsingar um þig og vilt láta leiðrétta þær eða eyða þeim úr gagnaskrá okkar eða ef þú vilt vita hvaða persónuupplýsingar við höfum skráðar um þig er þér velkomið að hafa samband við upplýsingaaðila Honda í heimilisfangi hér efst á síðunni. Þú getur einnig sent póst á netfangið: bernhard@bernhard.is
Við gerum það sem mögulegt er til að framfylgja óskum þínum og svara þeim spurningum sem upp koma.




